Sleppa í efni
Leigja staðinnEnglish

Merki Bingo DrinkeryBingo Drinkery

Skólavörðustígur 8, 101 Reykjavík

Hvað er Bingo?

Bingo er lítill og kósý hverfisbar á annarri hæð á skólavörðustíg 8. Við leggjum mikið uppúr notalegu andrúmslofti, frábærum kokteilum og skemmtilegu úrvali af bjórum á krana og í gleri/dósum. Gengið er inn að baka til, frá bílastæðahúsinu Bergstöðum við Bergstaðastræti.

Teymið á Bingo Drinkery inni á barnum
Rautt kokteilglas verið að hella í á barnum

Drykkir

KOKTEILAR

Kokteil seðillinn okkar er lítill og nettur, en allir ættu að finna eitthvað við hæfi. Léttir og ferskir, sterkir og beiskir, kaffikokteilar og allt þar á milli. Svo erum við alltaf með nokkra geggjaða óáfenga líka.

BJÓR

4 bjórar á krana til að velja úr. Gull lite, Guinnes, húsbjórinn okkar Bingo Pilsner og svo einn róterandi; yfirleitt einhverskonar IPA afbrigði. Svo erum við alltaf með eitthvað skemmtilegt í kælunum fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt.

Happy hour

Við bjóðum uppá happy hour alla daga á milli 16:00 og 19:00. Þá eru allir kokteilar á seðli, bjór á krana og vín í glösum á góðum afslætti. Fullkomið til að hefja kvöldið.

Bjór og barverkfæri við Bingo-búr
Borðspil við glugga inni á Bingo Drinkery

Kíktu í spilaskápinn

Í spilaskápnum okkar er að finna allskonar borðspil. Kíktu í drykk og spil með vinunum! Algjör snilld þegar það er glatað veður. Sem er náttúrulega oftast..

Viðburðir

Við elskum allskyns viðburði. Við reynum að halda pöbbkviss og bingo kvöld a.m.k einu sinni í mánuði. Fylgdu okkur á instagram @Bingo.rvk til að sjá næstu dagsetningar!

  • Gestir á bingo viðburði
  • Yfirlitsmynd yfir rýmið á viðburðarkvöldi
  • Önnur stemningsmynd af bingo kvöldi
  • Pub quiz stemning á Bingo Drinkery

Staðsetning og opnunartímar

Heimilisfang

Skólavörðustígur 8
101 Reykjavík
Ísland
Inngangur að aftan um bílastæðahúsið við Bergstaðastræti.
Leiðbeiningar

Opnunartímar

Sun-Fim
Sunnudaga til fimmtudaga frá 16:00 - 23:00
Fös-Lau
Föstudaga og laugardaga frá 16:00 - 01:00
Happy hour
Happy hour frá 16:00 - 19:00
Athugið
Við opnum fyrr þegar veðrið er rosalega gott.

Hafðu samband

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum eða notaðu kortið og leiðbeiningarnar til að finna barinn.